2006-01-21

Fræðileg nýtni Carnot hitavéla

Að undanförnu hef ég verið að velta fyrir mér möguleikum á nýtingu takmarkaðra orkuauðlinda á afskekktum stöðum sem hvorki hafa rafmagn eða hitaveitu. Teorían fyrir Carnot hitavélina sýnir svo ekki sé um villst, að verulegan hitamun þarf til að ná fram fræðilegri nýtni, sem í raun er mun hærri en nýtni raunverulegrar vélar. Þá er hættan sú að nýtnin reynist vera neikvæð í raun.

Samkvæmt formúlunni, þarf uþb. 600°K (uþb 300°C) til að fá fræðilega nýtni upp á 50% (1-(300 °K)/(600 °K)).

Þegar verið er að hugsa um jarðhita lægri en 100°C er nýtnin fræðilega séð um 25% en þá er eftir að reikna inn dælur sem taka 30% af nýtninni. Því er þetta neikvætt í raun.



2006-01-18

Stefna dagblaðs er kallast (Dé Vaff) DV

Ýmislegt hefur verið skrifað og rætt um blaðið DV og ritstjórnarstefnu þess. Virðist sem fólk sé að reyna að finna út hver er ábyrgur fyrir stefnu blaðsins. Fólk er þó ekki sammála. Sjálf hef ég gagnrýnt það áður.

Sumir eru á þeirri skoðun að eigendur fjölmiðils hafi ábyrgð á stefnu hans og þarmeð að enginn fjölmiðill hafi raunverulegt skoðanafrelsi. Það ermjög áhugavert að skoða þetta í ljósi gagnrýni á Baug GROUP sem eiganda Fréttablaðsins. Á meðan lögreglurannsókn stóð sem hæst á hendur eigenda Baugs var þeirri skoðun haldið á lofti, að Fréttablaðið hlyti að vera handbendi eigenda sinna. Þeir sem héldu þessu fram voru í raun sammála þeirri skoðun að fjölmiðill sé ávallt handbendi eigenda sinna. Á hinu háa Alþingi íslendinga var sett fram frumvarp um fjölmiðla sem síðan var samþykkt. Þetta þýðir með öðrum orðum að meirihluti þingmanna hafi verið á þeirri skoðun að fjölmiðill sé handbendi eigenda sinna. Það er mjög áhugavert, að þegar Morgunblaðið hafði ráðandi markaðshlutdeild á Íslandi í áratugi höfðu þingmenn ekki áhyggjur af áróðri frá eigendum Morgunblaðsins.

Hvað olli þessum stakkaskiptum? Þegar Fréttablaðið hafði náð stærri útbreiðslu en Morgunblaðið, reyndu eigendur þess að nota það gegn eigendum Fréttablaðsins. Þarna var um að ræða aðskildar viðskiptablokkir sem hegðuðu sér eins og ættir og ættbálkar á sturlungaöld. Sem betur fór hefur Ísland forseta sem hafði kjark til að taka í taumana og stöðva fjölmiðlafrumvarpið með því að beita synjunarvaldi sínu. Skáru þá viðskiptablokkirnar upp ramakvein um að forsetinn hefði með gerðum sínum tekið ráðin af lýðræðinu.

Hvernig kemur þetta svo DV við? Jú spurningin er: Er fjölmiðill háður eigendum sínum?

Þórdís Sigurðardóttir stjórnarformaður skrifar um sjálfstæði ritstjórna skv. Blaðinu, laugardag 14. janúar 2006 bls. 6:

“[Dagsbrún] virðir grundvallarreglur frjálsrar blaðamennsku og leggur áherslu á sjálfstæði ritstjórna, m.a. gagnvart eigendum, auglýsendum, hagsmunahópum og opinberum aðilum. “

Með þessu þvær Þórdís hendur sínar af ritstjórnarstefnu DV.

Þorbjörn Broddason, fjölmiðlafræðingur skrifar m.a. í Blaðið laugardag 14. janúar 2006 bls. 6:

“Þrátt fyrir að ég og líklega allir aðrir vilji slá vörð um sjálfstæði ritstjórna er ikki þar með sagt að stjórnin geti í þessu tilfelli þvegið hendur sínar af blaðamennsku DV”

Þorbjörn telur að þó ritstjórn DV sé sjálfstæð, hljóti eigand blaðsisns að bera einhverja meðábyrgð á ritstjórnarstefnunni.

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður skrifar m.a. í Blaðið laugardag 14. janúar 2006 bls. 14:

[DV] “var of lengi á ólánsbraut. Þannig virtist oft vafn ógæfusöm ára yfir blaðinu og því fólki sem það slengdi miskunnarlaust á forśíðu og hafði af mannorðið. Það er vissulega hægt að reka blað af kaldri rökhyggju og gera ógæfu annarra að söluvöru án nokkurs tillits til tilfinninga. En það hlýtur alltaf að koma að skuldadögum.”

“Menn völdu sér ranga braut í fréttaflutningi, sennilega af því þeir ætluðu sér að selja dagblað og var nokk sama hvað þeir þyrftu til að gera til að ná árangri.”

Kolbrún fjallar ekki um ábyrgð eigenda DV en fjallar hinsvegar um ábyrgð ritstjórnarinnar og telur hana eiga ábyrgðina.

Egill helgason þáttastjórnandi skrifar m.a. í Blaðið laugardag 14. janúar 2006 bls. 54:

“Svo finnst mér nú stjórnin og forstjóri fyrirtækisins aðeins of dugleg við að fría sig ábyrgð á þessu blaði sem þeir hafa nú haldið úti í tvö ár. Ég hefði viljað sjá þá taka á sig einhverja ábyrgð á því sem þerna hefur verið að gerast síðastliðin ár.”

Egill er einnig inni á að yfirmenn ritstjórnar eigi einnig ábyrgð á ritstjórnarstefnu DV.

Niðurstaða þessarar stuttu umræðu er á einn veg: Ábyrgðin á ritstjórnarstefnu DV hvílir einnig á eigendum blaðsins.

2006-01-12

Að nytja sorg, harmleiki, skömm, líf og mannorð

Það virðist allt á öðrum endanum í þjóðfélaginu vegna afleiðinga forsíðu Dagblaðsins fyrir nokkrum dögum. Ég hef áður gagnrýnt fréttaflutning Dagblaðsins harðlega, en það er langt síðan. Einhliða fréttaflugningur útvarps, sjónvarps, og dagblaðanna þjónar engum. Það er nauðsynlegt að flytja fréttir. Það er nauðsynlegt að gagnrýna það sem miður fer.
Ég er ekki að sakfella DV, þegar ég segi að blaðið og ábyrgðarmaður þess beri mikla ábyrgð á mannorðsmorði því sem framið var, og dauða mannsins.
Ég ætla heldur ekki að ásaka DV fyrir að hindra réttvísina að störfum með skrifum sínum og heldur ekki fyrir að hindra, að þau fórnarlömb sem blaðið staðhæfði að maðurinn hefði nauðgað, fengju réttláta miskabót.
Ég ætla að saka DV um algjöra siðblindu og takmarkalausa græðgi. Stefna blaðsins og ritstjóra þess er beinhörð notkun á sorg, harmleikjum, skömm, lífi og mannorði þess fólks sem það beinir athygi sinni að. Svona hagar rándýr sér í dýrahjörð.
Stefna blaðsins er ekki upplýsingar í almannaþágu, þósvo að einmitt þetta sé ástæða þess að lögreglan vinni með fjölmiðlum og gefi þeim upplýsingar.
Þetta mál sýnir svo ekki verður um villst að stefna blaðsins er gegn almannahagsmunum. Stefna blaðsins er ekki að upplýsa. Stefnan er að nytja sorg, harmleiki, skömm, líf og mannorð.
Ritstjóri blaðsins hefur áður sagst hafa sannleikann og allann sannleikann. Hann vill hinsvegar ekki útskýra hversvegna hans útgáfa af sannleikanum, samrýmist ekki veruleikanum. Hann telur sig geta sagt allann sannleikann með því að greina frá þeim litla hluta sannleikans sem fellur að stefnu hans og DV. Slíkur maður ætti heldur að fá sér vinnu sem áróðursmeistari í landi sem gefur út einkaleyfi á sannleikann.

Hvar endum við þá?

Hvar endum við þá? Spyr Karl Sigurbjörnsson biskup þegar rætt er um að kirkjan viðurkenni hjónabönd samkynhneigðra. Hann heldur því fram að slík viðurkenning sé hreinlega að kasta hjónabandinu á öskuhaugana. Og hvar endum við þá, spyr hann enn og aftur og ruglar um að það muni einnig leiða til að leyfa eigi hjónabönd milli systkina.
Röksemdafærsla hans er enn eitt dæmið um slippery slope (flughálka) . Reynt er með rökleysu að sannfæra fólk um að það muni hafa slæmar afleiðingarnar að gera eitthvað ákveðið. Sýna má fram á að ekki sé raunhæft að halda að afleiðingarnar verði það sem bent er á.
Ekkert bendir til að systkini fari að gifta sig þó svo að samkynhneigðir verði gefnir saman í kirkju. Ekkert bendir til að hjónabönd annarrra rýrni eða að fólk missi löngun til að gifta sig eða vilji skilja ef kirkjan vígir samkynhneigða.
Þvert á móti er ástæða tið að ætla að fólk verði ánægt með þjóðfélagið og upplifi jafnrétti samkynhneigðra að þessu leyti sem skref í átt að þjóðfélagslegu réttlæti.

Karl Sigurbjörn í viðtali við útvarpið Rás 2 í fréttum kl 18:30 12. janúar 2006.

Sjá einnig skyld dæmi um afstæðishyggju.

2006-01-07

Frjáls markaður var léttur á vogaskálinni

Joseph Stiglitz , nóbelsverðlaunahafi í hagfræði árið 2001, gagnrýnir harðlega stefnu bandarískra stjórnvalda varðandi fjárfestingar erlendra fyrirtækja. Þann 23. júni 2005 yfirbauð kínverska olíufyrirtækið CNOOC keppinaut sína í Chevron þegar CNOCC bauð 18,5 milljarða dollara fyrir olíufyrirtækið UNOCAL. Á þessum tíma fór heimsmarkaðsverðið á olíu hækkandi og í Washington var pólítískur ótti við að kínverjar myndu eignast og stjórna þessu olíufyrirtæki. Kínverska olíufyrirtækið dró tilboð sitt til baka vegna pólítiskra mótmæla í Washington. Viðbrögð bandaríska þingsins gerðu CNOOC ómögulegt að kaupa UNOCAL þrátt fyrir að þeir hefðu boðið 2 milljörðum dollara hærra en Chevron.

Þetta er skýrt dæmi um hvernig markaðinum er stjórnað af öðrum lögmálum en framboði og eftirspurn. Þrátt fyrir þetta er áróðurinn um frjálsan markað orðin að einhverskonar möntru eða trúarjátningu alþjóðavæðingarinnar.

Að þessu leyti er bandaríska þingið ósamkvæmt sjálfu sér þegar það lýsir kinnroðalaust yfir áhyggjum um að lögmál hins frjálsa mankaðar henti ekki stefnu bandaríkjastjórnar í þessu tilfelli.

Fáir eru jafn ötulir og bandaríkjamenn við að boða fagnaðarerindið um frjálsa markaðinn. Með viðbrögðum sínum hafa þeir sýnt að pólítiskt mat á hagsmunum þjóðarinnar getur stýrt markaðinum.

Í bandaríska þinginu komu fram hávær mótmæli þess efnis, að sala UNOCAL til CNOOC gæti stefnt öryggi þjóðarinnar í hættu og þannig sýndu þeir í verki að hagsmunir þjóðar eru þyngri á metskálunum en frelsi markaðarins.

Stolið og skrumskælt úr Fréttablaðinu, 28. des. 2005 síðu 24.



2005-12-31

Hraðakstur um Ártúnsbrekkuna

Þar sem ég bý í Árbæ fer ég um Ártúnsbrekkuna á hverjum degi til og frá vinnu. Hraði umferðar er leyfður 80 km á klst sem er ágætis hraði. Hlekkurinn að ofan vísar á síðu sem sýnir svo ekki sé um villst að ríkiskassinn gæti stórgrætt á hraðasektum á þessum stað, því að um helmingur ökumanna keyrir ólöglega hratt.



Til dæmis keyrðu í austurátt á hverjum 10 mínútum um 150 ökutæki á 90 km hraða eða meir, Milli kl. 12 og 16 í dag gamlársdag 2005. Samtals voru þetta um 6500 bílar samtals. Hefði hver þeirra fengið 5000 kr í sekt væri það um 30 milljónir beint í kassann.

Sjá einnig umferðarmælingar og einnig
Umferð í Ártúnsbrekkunni



Ganga til Goðdals.

Rétt fyrir jólin 1948 gerðist sá hörmungaratburður að snjóflóð féll á bæ í Goðdal á Ströndum. Þarna stóðu 2 bæir og bjó skyldfólk mitt þar með sínar ær og kýr. Þessu fólki hefur varla verið fisjað saman því Goðdalur var harðbýll samanber lýsingu Árna Magnússonar á landsins gæðum. Fyrr á öldum hafði fólk dáið drottni sínum úr hungri í þessum dal.

Upphaflega hafði langafi minn Kristmundur búið á bænum í Goðdal. Hann nýtti jarðhitan á svæðinu til að veita hita inn í bæinn. Hann varð einn af þeim íslendingum sem fékk viðurkenningu frá Konungi á fyrsta hluta 20. aldar fyrir framtakssemi.

Ömmubróðir minn, Jóhann og kona hans ákváðu að byggja sér nýtt steinhús í nágrenni við bæ langafa. Lítið vissu þau um snjóflóðahættu í þessum fallega dal með bröttum fjallshlíðum. Mikil snjókoma hafði verið um allt vesturland. Á baksíðu Morgunblaðsins þann 14. desember 1948 er grein um mikin veðurofsa á vestfjörðum og að símasamband hafi rofnað víða, þar á meðal á vestfjörðum.

Greinilegt var að fólkið í Goðdal skorti lítið og fleiri af börnum Jóhanns sóttu framhaldsskóla langt frá heimili sínu. Einmitt þetta varð til að bjarga lífi þessara barna þennan örlagaríka dag. Um kl 18 Sunnudag þann 12. desember féll snjóflóð á bæ Jóhanns og eyðilagði hann. Símalínur höfðu víða slitnað og því þótti ekki óeðlilegt að ekkert samband væri við Goðdal.



Maður sem gekk með póst til Goðdals 4 dögum seinna var sá fyrsti sem sá hvað hafði gerst og sendi eftir hjálp. Jóhann bóndi var enn á lífi eftir þessa 4 daga en mikið kalinn á höndum og fótum og missti hann fæturna. Samkvæmt frásögn Morgunblaðsins þann 19. desember 1948 á bls. 1 og 2 lifðu nokkur af börnunum nokkurn tíma eftir flóðið, en dóu áður en björgun kom. Um tveimur árum seinna tók hann líf sitt og Goðdalur lagðist í eyði.

Sé litið í ættfræðibækur virðist sem börnin hafi ekki látist samstundis heldur nokkrum dögum seinna. Erfitt er að gera sér í hugarlund hvílíkar þjáningar þau hafa þolað. Þekking á sálfræði var mjög takmörkuð þá og því lítið vitað um hvort Jóhann hafi brugðist við eins og svo margir aðrir sem lifa stórslys af, en hafa mikla sektarkennd vegna þess að þau lifðu af.



Móðuramma mín, Ingibjörg Kristmundsdóttir sem var ljósmóðir, bjó um lík bróður síns og fjölskyldu hans. Hún lagði af stað í gönguferð sem er um 17,5 km á lengd (sjá rauða línu á korti) , yfir fjöll, hálsa og heiðar. Meðal hæðin þarna er um ca 200 m yfir sjávarmáli hæst um 400 m. Áætla má að raunveruleg vegalengd sé um 25 km vegna halla upp og niður. Líklegt er að nokkur snjór hafi verið á leiðinni. Má því ætla að þetta hafi verið erfið dagleið í kulda og slæmri færð fyrir konu sem er ólétt og komin þrjá mánuði á leið. Hún talaði sjaldan um þetta.


Um fjörutíu árum seinna þegar við minntumst á þetta og hún talaði um þetta, var greinilegt að hana langaði ekki að tala mikið um þetta. Þó að ég sé forvitin að eðlisfari vildi ég ekki spyrja hana nánar því ég heyrði og sá á henni að þetta hafði verið mjög mikið trauma fyrir hana.

Þrátt fyrir að snjóflóðið hafi valdið miklum harmleik, sýndu þau sem lifðu af mikinn styrk. Nokkur barna Jóhanns urðu til dæmis hámenntuð og amma náði 99 ára aldri. Rétt eins og langafi minn og langamma í Goðdal sigruðust á erfiðleikum, sigruðust afkomendur þeirrra einnig á erfiðleikum.




Mig langar að minnast þessa fólks og ömmu minnar með því að ganga sömu leið og hún gekk. Ég ætla að fara fyrstu gönguna sumarið 2006. Vinum og vandamönnum er velkomið að slást með í förina.

2005-12-20

Sprakk

Jæja þá get ég ekki haldið mér lengur.
Það sem ég hef verið að bíða eftir, er ákvörðun mannauðssnillinganna hjá
ráðningafyrirtæki í Reykjavík.
Í október var ég kölluð inn í viðtal varðandi umsókn mína um stöðu
rafmagnsverkfræðings við álverið á Reyðarfirði. Mér var sagt að úrvinnsla
myndi hefjast í byrjun nóvember 2005.

Nú þann 20. desember 2005 er úrvinnsla nýlega hafin.

Alcoa Fjarðaál - Rafmagnsverkfræðingur á upplýsingatæknisviði
Úrvinnsla hafin. 05092312

Ég verð að viðurkenna að eftir 2. viðtal mitt við þetta fyrirtæki, gekk
ég út með þá tilfinningu að ég hefði verið of opinská og blátt áfram.
Gerði meðal annars þá skyssu að svara nei þegar ég var spurð um hvort
ég væri skipulögð. Þegar ég hafði svarað kom í ljós að verið var að tala
um hvort ég ynni skipulega sem er allt annað mál.

Ég hef ekkert á móti ráðningafyrirtækjum sem slíkum. Mín reynsla af
þessu fyrirtæki er þó sú að það lætur nota sig til að auglýsa störf hjá
nafnlausum fyrirtækjum. Þetta er mikið notað erlendis af fyrirtækjum til að
athuga hvort starfsmenn þeirra séu að leita fyrir sér hjá öðrum fyrirtækjum.
Ef td. fyrirtæki A sem er í mikilli samkeppni við fyrirtæki B vill vita hvort
starfsmenn þess eru að leita fyrir sér annarsstaðar, þá hefur það samband við
ráðningafyrirtæki sem auglýsir störf hjá nafnlausu fyrtæki samkvæmt lýsingu
fyrirtækis A en þeir ákveða að lýsa því þannig að það hljómi sem fyrirtæki B.
Ráðningarfyrirtækið sendir síðan umsóknir starfsmanna fyrirtækis A áfram til
stjórnar fyrirtækis A. Síðan hefur stjórn fyrirtækisins möguleika á að
taka þessa starfsmenn undir sérmeðferð.

Þessar aðferðir eru ekki heiðarlegar, og fyrirtæki sem gera þetta mögulegt eða
taka þátt í þessu eru ekki það sem ég myndi kalla virðingarverð fyrirtæki.

2005-12-17

Drífa sig.

Nú er næstum kominn mánuður síðan ég hef skrifað almennilegan pistil. En ég bíð enn eftir niðurstöðum og vona að menn fari að taka sig saman og drífa af það sem þarf að vera búið.

2005-12-12

Næstum Dauðaþögn

Ég bíð eftir vissum niðurstöðum sem ættu að vera komnar fyrir löngu, en eru samt ekki komnar enn. Mig langar ekki að blogga fyrr en niðurstaða hefur verið fengin.