2008-09-24
Little truth about a queen
filipinese Raquela
Those that have some ideas about the film,
and which I definitely recommend are:
Sass Rogando
Her wrintings about the film
The IMDB database about the film.
http://www.imdb.com/
Marketet as a Cinderella story on M Comet and on Star Mo Meter
See trailer:
http://www.hollywood.com/trailer/The_Amazing_Truth_About_Queen_Raquela/5303945
Hopefully others will also have some opinions on this flilm.
2008-09-19
Svolítill sannleikur um Drottningu
hina filipeysku Raquelu.
Þau sem hafa gert sér hugmyndir um hana og
sem ég mæli eindregið með eru:
Sass Rogando
Skrif hennar um kvikmyndina
IMDB Gangagrunnurinn um kvikmyndina.
http://www.imdb.com/
Markaðssett sem Öskubuska á M Comet og á Star Mo Meter
Sjá trailer:
http://www.hollywood.com/trailer/The_Amazing_Truth_About_Queen_Raquela/5303945
Vonandi munu einnig aðrir gera sér hugmyndir um þessa
kvikmynd.
2008-08-20
hver er kominn í undanúrslit?
Við erum komnir í undanúrslitog átti þannig við íslensku karlþjóðina.
Þannig útilokaði hann þann helming íslensku þjóðarinnar sem er kvenkyns. Það er einmitt svona hlutir sem gera að jafnrétti er ekki raunin í íslensku þjóðfélagi. Það sem verra er: Konur eru meðvirkar í þessu og finnst þetta alveg sjálfsagt. ÞAÐ FINNST MÉR EKKI!
Eftir 30 ára misheppnaða jafnréttisbaráttu, er kominn tími til að konur byrji að standa með sjálfum sér!
2008-03-24
Fljúgandi Gítar
Oft hefur gítar verið með í för minni milli Færeyja og Íslands. Aftur og aftur hefur maðurinn minn tekið gítarinn með sem handfarangur því annars má reikna með að hann eyðileggist á leiðinni, ef hann er í mjúkri tösku. Fyrir um ári síðan, keypti hann sér harða tösku undir gítarinn og síðan hefur hann verið tekinn sem venjulegur farangur með hinum töskunum.
Við mættum með farangurinn á Reykjavíkurflugvöll kl 12:50 en vélin átti að fara af stað um kl 13:30. Hann benti mér fljótlega á að fyrir framan okkur í röðinni voru Eivør og Jón Tyril með farangur og hljóðfæri. “Hún verður að fá að taka þetta sem handfarangur” sagði ég. Hann leit á mig og samsinnti. Við fylgdumst vel með þegar kom að því að afhenda farangurinn. Þau áttu í nokkrum samræðum við starfsfólkið, og loks afhenti hún gítarinn sinn, sem var í mjúkri tösku. Hann var settur á færibandið með stórum og þungum töskum.
Röðin kom að honum og brátt var búið að afhenda farangur og ganga frá farmiða. Þau stóðu stutt frá okkur, og ég stóðst ekki mátið, heldur gekk til þeirra og spurði Eivøru á færeysku hvort henni hefði verið neitað um að taka gítarinn sinn með sem handfarangur. "Já, ég mátti ekki taka hann með. Það eru komnar nýjar reglur.” Maðurinn minn spurði hana hvort þetta hafi verið dýr gítar, og hún kinkaði kolli. Við ræddum um meðferðina á farangrinum og hversu viðkvæm þessi hljóðfæri eru. Eivør var nokkuð viss um að ef gítarinn skemmdist, fengi hún það ekki bætt. Síðan skildu leiðir og hún kinkaði kolli í kveðjuskyni.
Maðurinn minn taldi að þetta væri allt öðruvísi en hjá Atlantic Airways, þrátt fyrir að ferðin væri á vegum þessa flugfélags. Mér fannst þetta ástand alveg ótækt og sagði við manninn minn að ég ætlaði að ræða aðeins við starfsfólkið sem stóð þarna við afgreiðsluborðið. Á meðan ég gekk þau tíu skref sem voru að afgreiðsluborðinu, ákvað ég að nefna fyrst gítar Eivørar, síðan gítar mansins míns og mjúku töskuna sem hann notaði einu sinni en er nú farinn að nota harða tösku. Hann tók gítarinn áður sem handfarangur en ekki nú. Síðan aftur í gítar Eivørar, og hversu dýrmætur hann er fyrir hana. Að sjálfsögðu nefndi ég ekki að hún hafði skilið hörðu töskuna eftir í Færeyjum.
Í ljós kom, að Atlantic Airways höfðu hert reglur um handfarangur fyrir um mánuði síðan og að starfsfólkið var bara að fylgja þeim reglum sem þeim voru settar. Starfsfólkið var sammála mér í því að hún hefði greinilega fengið að taka gítarinn með sem handfarangur frá Færeyjum, og því væri Atlantic Airways ekki að fylgja eigin reglum. En svona voru reglurnar og því ekkert að gera. Ég brosti í kveðjuskyni og kinkaði kolli til starfsfólksins. Síðan bar þar að öryggisvörð flugvallarins og við þekktumst frá fyrra starfi. Ég vinkaði henni, heilsaði og kvaddi allt í senn.
Það var erfitt að kveðja manninn minn og stutt í tárin. Honum er illa við að kyssast á opinberum stöðum og vildi helst kveðja mig stuttlega. Hann fékk ekki að ráða. Eftir að hafa kvaðst tvisvar kvöddumst við innilega í inngangi flugstöðvarinnar.
Ég var rétt búin að leggja bílnum við vinnuna mína hjá Háskólabíói, þegar maðurinn minn hringdi í mig. “Þau létu Eivøru fá gítarinn aftur!” Hrifningin í rödd hans var greinileg og ég hló af gleði. Hann var á leiðinni út í flugvélina og fannst að ég yrði að fá að vita þetta, þar sem ég ætti líklega einhvern þátt í þessu. Við kvöddumst aftur og ég hugsaði hlýlega til starfsfólksins á flugvellinum og til öryggisvarðarins sem líklega átti sinn þátt í þessu. Nú ætlaði ég að hlusta aftur á flövuna Mannabarn eftir Eivøru.
2007-08-13
Transgender Cyborg
Trans Ísland tekur vonandi þátt í Hinsegin Dögum árið 2008 sem sjálfstætt félag. Í rúmlega eitt og hálft ár hef ég gengið með hugmyndir um hvernig við getum fylgt stefnu Homma og Lesbía, síðustu áratugi í göngunni: Að staðfesta alla fordómana, sýna lífsgleði, frumkvæði og sköpun.
Þeir fordómar sem Transgender fólk mætir oft, er að við breytum líkömum okkar svo mikið að talað er um að við séum með gerfibrjóst, gerfikynfæri, gerfihár, gerfikinnbein, gerfinef, kyngerfi og svo framvegis. Einnig virðist fólk óttast að hægt sé að smitast og verða Transgender.
Þessa fordóma ættum við að staðfesta í næstu göngu, og gera það af sannfæringu og lífsgleði.
Þekkt er tengingin milli Transgender og Cyborg, en þau síðarnefndu koma fyrir í skáldsögum og kvikmyndum, allt frá Frankenstein eftir Mary Shelley, og fram í vísindaskáldsögur seinustu áratuga. Má þar helst nefna Star trek kvikmyndirnar, en í þeim höfðu Borgir ráðist á mannfólkið til að útrýma því. Borg þessi voru lifandi vélmenni sem ætluðu að ná heimsyfirráðum og breyta öllum í lifandi vélmenni. Mannfólkið fékk eftirfarandi orðsendingu: “We are Borg! Resistance is Futile. Prepare to be assimilated.” (is: Við erum Borgir! Andspyrna er gagnslaus. Búið ykkur undir aðlögun! )
Reglan er að Cyborgirnar eru ómenni sem bera ekki virðingu fyrir neinu. Oft eru þær skúrkar eða glæpamenn. Einnig eru til undirgefnar Cyborgir og er þeim þá treystandi fyrir einföldum störfum. Fjallað hefur verið um þetta m.a. á ráðstefnu nýverið í Bandaríkjunum um Félagslegar Rannsóknir. Þar voru meðal annarra nefnd tengslin milli kynþátta og Cyborg myndhverfingarinnar. Einnig voru nefndar hugmyndir um intersex og Cyborg líkamningu. Síðast en ekki síst var fjallað um skáldsögu Angelu Carter: Ástríða hinnar nýju Evu. Titillinn var “’I would rather be a cyborg than a goddess’: The Transgender Cyborg and Embodiment in Angela Carter’s 'The Passion of New Eve'”
Aðrar athuganir á skáldsögum þar sem Cyborg kemur við sögu, virðast sýna að Cyborg er í flestum tilfellum kvenkyns. Þessar athuganir virðast sýna Cyborgina sem póstmódernístíska myndhverfingu fyrir kvenlega undirgefni. Þannig er verið að letja gangrýna umræðu um kynþætti í alþjóðlegum kvikmyndum.
Birting okkar sem Transgender Cyborgir myndi staðfesta alla fordómana og að auki myndum við ýta verulega við umræðu um jafnréttismál kynjanna og kynþátta, ásamt því að ýta við umræðu um jafnrétti fatlaðra.
Mín hugmynd er því að Trans Ísland taki þátt í Gay Pride 2008 og verði Cyborgir. Töluverð vinna hefur þegar verið lögð í að finna hæfilegt grafískt útlit og tillögur að búningum og útliti.
.-. .-.
/'v'\ /'v'\
(/ \) (/ \)
======="="=='=='="="===-----
Megi Ó-Frjálslyndi flokkurinn verða póstmódernístísk myndhverfing fyrir kvenlega undirgefni.
2007-07-12
Talar DV máli glæpamanna
Í auglýsingum DV í sjónvarpi segir:
Við Tölum Þínu Máli!!!
Nú þegar einn af rannsóknarlögreglumönnunum segir að DV hafi eyðilagt rannsókn stærsta kókaín máls sem komið hefur upp hingaðtil, er ástæða til að spyrja:
Við hvern er DV eiginlega að tala?
Hverjum er DV að falbjóða málgagn sitt, og fyrir hvaða málstað?
Við upphaf blaðamennsku í Frakklandi, voru dagblöðin kölluð franska orðinu avis sem merkir afstaða eða skoðun. Þau höfðu skoðun á þjóðmálum og skrifin voru lituð af þessari afstöðu. Við sjáum þetta enn þann dag í dag í flestum dagblöðum með sjálfsvirðingu.
Afstöðuleysi DV ber í sér eiginleika sem oft verið kenndur við vændi: DV selur sig hagkvæmasta málstað.
.-. .-.
/'v'\ /'v'\
(/ \) (/ \)
======="="=='=='="="===-----
Megi Ó-Frjálslyndi flokkurinn falast eftir hagkvæmari málstað.
2007-06-21
Bannað að segja k(BEEP)ingur.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum (auglýsingar Birtings á RUV og Stöð 2 ) hef ég - yfirvald Íslands á þessu sviði - lagt bann við notkun þessa orðs. ;)
Nú er unnið hörðum höndum að leggja bann við að skrifa þetta orð. Næsta skref er að sjálfsögðu ritskoðun og að endurrita Íslandssöguna þannig að komandi kynslóðir megi lesa ritaðar heimildir um þetta, án þess að brjóta
landslög. :->
Að sjálfsögðu verður þessu fylgt eftir með tilheyrandi refsilöggjöf. :D
.-. .-.
/'v'\ /'v'\
(/ \) (/ \)
======="="=='=='="="===-----
Megi Ó-Frjálslyndi flokkurinn verða bannaður.
2007-05-01
Afsökunarbeiðni til Örnu Schram formanns B.Í.
Í nýlegri grein minni um meðferð kærumáls fyrir siðanefnd
B.Í., skrifaði ég að Arna Schram hefði verið að tala um áðurnefnt
kærumál þegar hún sagði eitthvað á þá leið að það ætti ekki
að drepa sendiboðann.
Ég vill biðjast afsökunar á þessari rangtúlkun, hún var ekki að
tala sérstaklega um þetta mál heldur almennt um blaðamennsku.
Mér var bent á þetta í gær, og þá áleit ég ekki að ég hefði rangtúlkað
en samt var ég ekki alveg ósammála ábendingunum.
Þegar ég hafði lesið greinina yfir og borið saman við ábendingarnar,
skipti ég um skoðun og var þá sammála Örnu um að hér væri um
rangtúlkun að ræða af minni hálfu.
Nú er alltaf ódýrt að að biðjast afsökunar, þegar maður
hefur náð sínu fram. Ég kýs þó frekar að breyta greininni, og
fjarlægja rangtúlkanirnar áður en hún verður gefin út, eða a.m.k.
birta þessa afsökunarbeiðni.
2007-04-29
Embættismenn Fjórða Ríkisvaldsins og Sendiboðar Sannleikans.
Siðanefnd Blaðamannafélag Íslands, tilkynnti fimmtudag 26. apríl s.l.,
að taka ekki til umfjöllunar, kæru á hendur Eiríki Jónssyni, vegna
umfjöllunar hans í tímaritinu Séð og Heyrt, um morðtilraun á
transgender manneskju.
Umfjölluninni var neitað á þeim forsendum að kærendur
Anna Jonna Ármannsdóttir þá í bráðabirgðastjórn
Trans-Íslands, Félags Transgender fólks á Íslandi
og Samtökin 78 sem nýlega hafa tekið transfólk undir sinn væng,
væru ekki málsaðilar og hefðu því ekki rétt til að kæra vegna þessa.
Á opnum fundi Samtakanna 78 laugardag 28. apríl, talaði Arna Schram,
formaður Blaðamannafélags Íslands, almennt um blaðamennsku og að
ekki ætti að drepa sendiboðann.
Þarna er tilvísun í Grískt leikrit eftir Sofokles skrifað u.þ.b. 400 árum fyrir
fæðingu krists, en í því er talað um að sendiboðinn ráði ekki hvaða skilaboð
hann fer með og hafi engin áhrif á þau. Hann er eingöngu sendiboði þess sannleika
sem honum hefur verið fenginn í hendur.
Sendiboðar Sannleikans
Ferill Eiríks Jónssonar sem sendiboði sannleikans hefur verið ansi litríkur.
Í þessu máli gerðist hann sendiboði þess sannleika sem kemur af vörum
ofbeldismanns þegar hann hélt því í raun fram að transkonan sem hann
reyndi að myrða, væri réttdræp. Mannorðsmorð á fórnarlambi árásarinnar,
og árás á transgender fólk sem minnihlutahóp, var einnig sá sannleikur
sem Eiríkur Jónsson gerðist sendiboði fyrir.
Stuttu eftir að greinin kom út í tímariti Séð og Heyrt, hótaði ofbeldismaðurinn
Eiríki Jónssyni lífláti vegna þess að í greininni hafði komið fram að
transkonan hefði verið kærasta ofbeldismannsins. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum innan útgáfufélagsins Birtings, fór Eiríkur Jónsson á
fund ofbeldismannsins en til öryggis tók hann nokkra sterka menn með sér.
Nú skal geta þess, að líflátshótanir varða við refsilög, en slíka smámuni þótti
Sendiboða Sannleikans ekki þess verða að almannahagsmunir þyrftu að
vita af þessu. Eiríkur Jónsson, sjálfútnefndur Sérlegur Sendiboði
Sannleikans ákvað að þegja um sannleikann.
Embættisglöp Fjórða Ríkisvaldsins
Boðskapur ofbeldismanns og mannorðsmorð í framhaldi af árásinni, komst
á síður tímaritsins án þess að embættismenn fjórða ríkisvaldsins aðhefðust
nokkuð. Þeir vöknuðu hinsvegar til dáða og til varnar sérlegs sendiboða
sannleikans, þegar undirrituð og Samtökin 78 kærðu þessa umfjöllun til
Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands. Svar þeirra var á þá leið, að kærendur
eru ekki beinir málsaðilar. Afstaða Siðanefndar B.Í. er semsé, að eingöngu
sú manneskja sem varð fyrir árásinni geti kært umfjöllunina.
Óvinnandi Vegur.
Sjálft fórnarlamb árásarinnar, skilur ekki íslensku nægilega vel og
hefur ekki næga þekkingu til að geta kært árásina. Hún skilur heldur ekki
umfjöllunina eða hvaða afleiðingar hún hefur fyrir allann þann minnihlutahóp
sem transgender fólk er.
Kröfur Siðanefndar B.Í. eru þessar:
Fórnarlamb árásarinnar, verður sjálft að skrifa tímaritinu, í von um að tímaritið birti
leiðréttingu eða afsökunarbeiðni. Hér sjáum við verulegan mun á aðstöðu málsaðila.
Í þessu máli er sjálfur sendiboði sannleika ofbeldismannsins, sem að baki sér
hefur Mikael Torfason ritstjóra tímaritsins Séð og Heyrt, en það hefur að baki sér
milljónaútgáfufyrirtækið Birting, sem einnig gefur út mörg önnur
tímarit.
Hinsvegar er fórnarlamb árásarinnar, sem er andlega og líkamlega í sárum,
mállaus og með mjög takmarkaða möguleika á að leita sér aðstoðar.
Hún hefur engann möguleika á að meta hvort hún muni gefa ofbeldismanninum
enn og aftur færi á sér með því að skrifa tímaritinu, en hafa skal í huga að hann
hélt því fram í grein Eiríks, að ásetningur hans hefði verið að drepa transkonuna,
hann hefði ekki getað annað, og jafnframt að hann hefur hótað fólki á Séð og Heyrt
lífláti, eftir að greinin birtist.
Mesta óréttlætið
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands, leggur þennan gífurlega aðstöðumun að jöfnu en
hindrar jafnframt Samtökin 78 og Trans-Ísland í að kæra.
Hanne Reintoft félagsráðgjafi í Danmörku sagði einhverntíma í útvarpsviðtali:
“Mesta óréttlætið er kannski að legga það að jöfnu sem ekki er jafnt.”
Ég tel að meðal annars þetta mál, gefi tilefni til að skoða nánar vinnuaðferðir og siðfræði
Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands.
.-. .-.
/'v'\ /'v'\
(/ \) (/ \)
======="="=='=='="="===-----
Megi Ó-Frjálslyndi flokkurinn verða lagður að jöfnu við þjóðlega og sósíalístísiska flokka.
aftur og aftur
Mon vi ka' plant et flag
For at rette den her sag
Mon I har tabt os bag
En vogn fra USA
Mon vi bør telepater
Hvem vil vi imponer
Mon I vil telefoner
Til nogen der vil massakrer
/..
Men når vi kommer igen (For)
Og gør det igen (Så)
Så vil I hør det igen (Og)
igen og igen (Og)
../
Mon vi skal sendes af sted
Mon vi skal bøjes af led
Mon I vil støt os ned
Med bly og blod og sved
Gætum við sett fána
Á þennan réttláta málstað
Hafið þið misst af okkur
Vegna bíls frá USA
Gætum við beitt hughrifum
Þau sem við viljum ná til
Gætum við hringt
Í einhvern sem vill gjöreyða
En þegar við komum aftur (Til)
Og gerum það aftur (Þá)
Munu þið heyra þetta aftur (Og)
aftur og aftur (Og)
Á að senda okkur af stað
Á að taka okkur úr lið
Á að kasta okkur niður
Með blýi blóði og svita.
.-. .-.
/'v'\ /'v'\
(/ \) (/ \)
======="="=='=='="="===-----
Megi Ó-Frjálslyndi flokkurinn enda sem ónýt rispuð plata sem segir það sama, aftur og aftur ...
